02:48:53 Europe / Stockholm
2023-11-27 10:51:41

Í 47. viku 2023 keypti SKEL fjárfestingafélag hf. 540.000 eigin hluti fyrir 6.790.000 kr. eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
21.11.202311:24:00340.000   12,50   4.250.000   50.592.855   
24.11.202310:06:00200.000   12,70   2.540.000   50.792.855   
  540.000 6.790.00050.792.855

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti SKEL 50.252.855 eigin hluti. SKEL hafa keypt samtals 32.274.337 hluti í félaginu sem samsvarar 16,67% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 407.474.289 kr. sem samsvarar 81,49% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. SKEL eiga nú samtals 2,62% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.936.033.774.

Um er að ræða tilkynningu um kaup SKEL á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 15. september 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf., magnus@skel.is