Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Råvaror |
Industri | Olja & gas |
Í 49. viku 2023 keypti SKEL fjárfestingafélag hf. 1.800.000 eigin hluti fyrir 23.165.000 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
4.12.2023 | 09:50:00 | 500.000 | 12,4 | 6.200.000 | 51.792.855 |
5.12.2023 | 13:37:00 | 500.000 | 12,6 | 6.300.000 | 52.292.855 |
6.12.2023 | 14:06:00 | 550.000 | 13,3 | 7.315.000 | 52.842.855 |
7.12.2023 | 09:31:00 | 250.000 | 13,4 | 3.350.000 | 53.092.855 |
1.800.000 | 23.165.000 | 53.092.855 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti SKEL 51.292.855 eigin hluti. SKEL hafa keypt samtals 34.574.337 hluti í félaginu sem samsvarar 17,86% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 436.814.289 kr. sem samsvarar 87,36% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. SKEL eiga nú samtals 2,74% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.936.033.774. Um er að ræða tilkynningu um kaup SKEL á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 15. september 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf., magnus@skel.is