03:26:16 Europe / Stockholm
2023-12-11 10:44:09

Í 49. viku 2023 keypti SKEL fjárfestingafélag hf. 1.800.000 eigin hluti fyrir 23.165.000 kr. eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
4.12.202309:50:00500.000    12,46.200.000    51.792.855  
5.12.202313:37:00500.000    12,66.300.000    52.292.855   
6.12.202314:06:00550.000    13,37.315.000    52.842.855   
7.12.202309:31:00250.000    13,43.350.000    53.092.855   
  1.800.000 23.165.00053.092.855

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti SKEL 51.292.855 eigin hluti. SKEL hafa keypt samtals 34.574.337 hluti í félaginu sem samsvarar 17,86% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 436.814.289 kr. sem samsvarar 87,36% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. SKEL eiga nú samtals 2,74% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.936.033.774. Um er að ræða tilkynningu um kaup SKEL á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 15. september 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf., magnus@skel.is