Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Råvaror |
Industri | Olja & gas |
Vísað er til fréttatilkynningar dags. 22. maí 2025, þar sem fram kom að undirritaður hefði verið kaupsamningur milli Orkunnar IS ehf. („Orkan“), sem kaupanda og Kaupfélag Suðurnesja („KSK“), sem seljanda, um alla hluti seljanda í Samkaupum, að nafnvirði 221.386.719 kr. eða því sem nemur 51,3% hlutafjár Samkaupa. Kaupverð hlutanna er samtals 2.878 m.kr. og miðar við að verðmæti hlutabréfa Samkaupa í heild sinni (e. equity value) sé 5.610 m.kr. sem samsvarar 13 kr. á hvern útgefinn hlut.
Í tilkynningu kom fram að viðskiptin væru háð eftirfarandi skilyrðum:
- Að samruna Samkaupa og Atlögu ehf., samkvæmt samrunasamningnum dagsettum 20. febrúar 2025, sé lokið;
- Að fyrir liggi skuldbindandi áskriftarloforð frá fjárfestum, eða sölutrygging íslensks banka, um áskrift að nýju hlutafé í Orkunni (eða nýju móðurfélagi samstæðu) að verðmæti a.m.k. 2.000 m.kr. sem skal nýtt til að efla fjárhagsstöðu Samkaupa;
- Að Orkan hafi komist að skuldbindandi samkomulagi við aðra hluthafa í Samkaupum um kaup á eignarhlut þeirra í félaginu þannig að samanlagður eignarhlutur Orkunnar og annarra aðila tengdum SKEL nemi að lágmarki 90,01% í kjölfar viðskipta;
- Samþykki fulltrúaráðs KSK;
- Að Samkeppniseftirlitið samþykki að í viðskiptunum felist ekki samruni sem beri að ógilda eða setja skilyrði fyrir samkvæmt 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005.
Orkan hefur nú undirritað kaupsamninga við aðra hluthafa Samkaupa um kaup á öllum hlutum þeirra í félaginu, í heildina 193.174.944 kr. að nafnvirði, á sömu kjörum og viðskiptin við KSK fara fram á. Við uppgjör viðskiptanna mun Orkan eiga um 96% af útgefnu hlutafé í Samkaupum. Fulltrúaráð KSK hefur sömuleiðis samþykkt kaupsamning Orkunnar og KSK. Loks hafa stjórnir Atlögu ehf. og Samkaupa undirritað öll samrunaskjöl vegna samruna félaganna.
Aðilar vinna í sameiningu að því að ganga frá útistandi skilyrðum um áskriftarloforð fjárfesta eða sölutryggingu viðskiptabanka félagsins að fjárhæð 2.000 m.kr. og að klára samrunatilkynningu til Samkeppniseftirlitsins.
Frekar upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, fjarfestar@skel.is