Tuesday 1 July | 10:07:37 Europe / Stockholm

Calendar

Est. time*
2025-03-06 - Annual General meeting
2025-02-06 - Year-end Report 2024
2024-08-15 - Quarterly Report 2024-Q2
2024-03-07 - Annual General meeting
2024-02-08 - Year-end Report 2023
2023-08-16 - Quarterly Report 2023-Q2
2023-03-09 - Annual General meeting
2023-02-15 - Year-end Report 2022
2022-10-27 - Quarterly Report 2022-Q3
2022-08-11 - Quarterly Report 2022-Q2
2022-04-28 - Quarterly Report 2022-Q1
2022-03-10 - Annual General meeting
2022-02-08 - Year-end Report 2021
2021-10-28 - Quarterly Report 2021-Q3
2021-08-11 - Quarterly Report 2021-Q2
2021-04-29 - Quarterly Report 2021-Q1
2021-03-05 - Ex-date Ordinary Dividend SKEL 0.00 ISK
2021-03-04 - Annual General meeting
2021-02-04 - Year-end Report 2020
2019-11-12 - Quarterly Report 2019-Q3
2019-08-27 - Quarterly Report 2019-Q2
2019-05-21 - Quarterly Report 2019-Q1
2019-03-27 - Ex-date Ordinary Dividend SKEL 0.00 ISK
2019-03-26 - Annual General meeting
2019-02-26 - Year-end Report 2018

Description

CountryIceland
ListMid Cap Iceland
SectorRaw materials
IndustryOil & Gas
Skel fjárfestingafélag är ett energibolag. Huvudverksamheten består i att erbjuda import, lagring och distribution av bränsleprodukter och tillhörande produkter. Utöver äger och förvaltar bolaget över flera bensinstationer och närbutiker under olika varumärken, inkluderat Skeljungur, Orkan, och Sprettur. Kunderna återfinns både bland privat- och företagskunder verksamma inom jordbruk, industri samt fiskeindustrin.
2024-10-30 18:14:27

Vísað er til fyrri tilkynninga dags. 19. janúar, 22. mars, 15. maí og 9. september 2024 vegna samrunaviðræðna SKEL fjárfestingafélags hf. („SKEL“) og Samkaupa hf. („Samkaup“), kt. 571298-3769 vegna samruna Samkaupa og tiltekinna félaga í samstæðu SKEL, nánar tiltekið Orkunnar IS ehf., Löður ehf., Heimkaupa ehf. og Lyfjavals ehf. („samrunafélögin“). Heimkaup rekur m.a. verslanir Prís, Extra, 10-11 og fer félagið með eignarhluti í Brauð & Co og Sbarro.

Undanfarna mánuði hefur SKEL átt í samrunaviðræðum við Samkaup eins og kynnt hefur verið. Framkvæmdar voru áreiðanleikakannanir, mat á rekstrarhorfum og tækifærum til þróunar og uppbyggingar hins sameinaða félags. Það var niðurstaða aðila að skynsamlegt væri að sameina félögin og í því lægju umtalsverð tækifæri til að ná fram samlegð.

Samkaup hefur mætt rekstrarlegum áskorunum það sem af er ári. Það sama gildir um matvörueiningar Heimkaupa, líkt og uppgjör SKEL fyrir fyrstu 6 mánuði ársins ber með sér. SKEL gerði kröfu um að hluthafar Samkaupa myndu auka hlutafé félagsins fyrir samruna. Stjórn Samkaupa féllst ekki á þá kröfu og tilkynnti um slit á viðræðunum.

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL:
„Við fjárfestum miklum tíma og undirbúningi í að koma á laggirnar þriðja stóra aflinu á íslenskum smásölumarkaði. Það eru því óneitanlega vonbrigði að það hafi ekki reynst fjárhagslegar forsendur fyrir því verkefni að þessu sinni. Við teljum að neytendur kalli eftir endurnýjun á matvörumarkaði, eins og nýleg opnun Prís sýnir. Í einfaldri mynd þá töldum við rétt og eðlilegt að dregið yrði úr áhættu í rekstri sameinaðs félags með innspýtingu eiginfjár og á það var ekki fallist. Við teljum að allir aðilar hafi unnið sín verkefni í þessu ferli af fullum heillindum og óskum Samkaup velfarnaðar í sinni vegferð. SKEL er óbeinn 5% hluthafi í Samkaupum og mun áfram fylgjast náið með þróun félagsins.“