18:59:52 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2020-08-20 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-15 Ordinarie utdelning SFS B 0.13 ISK
2020-06-11 Årsstämma 2020
2019-08-22 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-03-25 Ordinarie utdelning SFS B 0.13 ISK
2019-03-20 Årsstämma 2019

Beskrivning

LandIsland
ListaFirst North Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDagligvaror
Sláturfélag Suðurlands driver egen köttproduktion. Idag består organisationen av ett flertal bönder och aktieägare som tillsammans driver verksamheten. Inom verksamheten återfinns egna slakterier och tillhörande bearbetningsanläggningar, där produkterna säljs både på den inhemska – och internationella marknaden. Utöver huvudverksamheten erbjuds bearbetade produkter för lammskinn som används inom modebranschen.
2021-08-26 16:45:58

Reykjavík, 26. ágúst 2021.

Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.

Afkoma á fyrri árshelmingi 2021

  • Tekjur á fyrri árshelmingi 6.563 m.kr. og hækka um 9% milli ára.
  • 129 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 21 m.kr. tap árið áður.
  • EBITDA afkoma var 539 m.kr. en 298 m.kr. árið áður.
  • Eigið fé 5.219 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 48%.

Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2021 var 129 m.kr. Á sama tímabili árið áður var 21 m.kr. tap. Eigið fé Sláturfélagsins er 5.219 m.kr. í lok júní.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 6.563 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2021, en 6.013 m.kr. á sama tíma árið áður og hækka því um rúm 9%. Aðrar tekjur voru 49 m.kr. en 44 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 3.479 m.kr. en 3.133 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 1.632 m.kr. og lækkaði um tæpt 1%, annar rekstrarkostnaður var 961 m.kr. og lækkaði um tæp 2% og afskriftir voru 239 m.kr. og lækka um tæp 2%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 299 m.kr., en 55 m.kr. árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 539 m.kr. en var 298 m.kr. á sama tíma í fyrra.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 143 m.kr., en voru 88 m.kr., á sama tímabili í fyrra.   Reiknaður tekjuskattur nam 31 m.kr. til gjalda, en 9 m.kr. til tekna árið áður. Hagnaður af rekstri tímabilsins var 129 m.kr. en 21 m.kr. tap á sama tímabili árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 523 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2021, samanborið við 297 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2020. Heildareignir Sláturfélagsins 30. júní voru 10.772 m.kr. og eiginfjárhlutfall 48% en 52% árið áður. Veltufjárhlutfall var 2,2 á fyrri hluta ársins 2021, en 2,0 árið áður.

Fjárfest var í varanlegum rekstarfjármunum á fyrri árshelmingi 2021 fyrir 125 m.kr. en 244 m.kr. á sama tímabili árið áður.   Fjárfest var í fasteignum fyrir 9 m.kr. og vélbúnaði og bifreiðum fyrir 116 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2021 var ekki greiddur arður af B-deild stofnsjóðs og ekki reiknaðir vextir á A-deild stofnsjóðs.

Stjórn og forstjóri staðfestu árshlutareikning samstæðu Sláturfélagsins fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2021
með undirritun á stjórnarfundi í dag. Árshlutareikningur samstæðunnar er með könnunaráritun endurskoðenda.

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ.   Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu ársins 2021 þann 17. febrúar 2022.

Staða og horfur
Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 48% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,2. Langtímaskuldir í lok júní 2021 voru 2.637 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 102 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma. Í ágúst var lokið við endurfjármögnun móðurfélagsins en tekin voru ný lán til 30 ára og eldri lán greidd upp. Vaxtakjör eru umtalsvert betri sem hefur jákvæð áhrif á vaxtakostnað félagsins á komandi árum.

Afkoma Sláturfélagsins batnar milli ára. Neikvæð áhrif af COVID-19 koma einkum fram í afurða- og matvælahluta samstæðunnar en samdráttur í innlendri kjötsölu milli ára var um 4% á landsvísu. Gert er ráð fyrir að neikvæðra áhrifa af COVID-19 muni áfram gæta á árinu og því næsta hið minnsta.

Innflutningur á kjöti og samdráttur í kjötsölu hefur haft neikvæð áhrif á afkomu afurðafélaga. Áfram verður unnið að því að aðlaga rekstur samstæðunnar að breyttu rekstrarumhverfi, m.a. með því að leggja áherslu á sérstöðu og gæði innlendrar framleiðslu.

Staða lykilvörumerkja félagsins í matvælaiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á markaði sem rennir stoðum undir frekari uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi árum. Aukin vélvæðing og öflug vöruþróun hefur styrkt grundvöll félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði. Samt sem áður er reiknað með erfiðum aðstæðum á kjötmarkaði á næstu árum. Einnig er erfitt að meta nú hversu lengi neikvæð áhrif af COVID-19 muni vara.

Matvöruhluti innflutningsdeildar hefur styrkt stöðu sína á markaði með nýjum vöruflokkum sem ganga vel. Búvöruhluti innflutningsdeildar hefur byggst upp á undanförnum árum og er að þjónusta bændur með allar helstu rekstrarvörur. Áfram verða nýtt tækifæri til frekari vaxtar.

Fjárhagsdagatal
Júlí – desember 2021 uppgjör                17. febrúar 2022
Aðalfundur 2022                                18. mars 2022

Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is