04:33:18 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2020-08-20 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-15 Ordinarie utdelning SFS B 0.13 ISK
2020-06-11 Årsstämma 2020
2019-08-22 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-03-25 Ordinarie utdelning SFS B 0.13 ISK
2019-03-20 Årsstämma 2019

Beskrivning

LandIsland
ListaFirst North Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDagligvaror
Sláturfélag Suðurlands driver egen köttproduktion. Idag består organisationen av ett flertal bönder och aktieägare som tillsammans driver verksamheten. Inom verksamheten återfinns egna slakterier och tillhörande bearbetningsanläggningar, där produkterna säljs både på den inhemska – och internationella marknaden. Utöver huvudverksamheten erbjuds bearbetade produkter för lammskinn som används inom modebranschen.
2023-02-16 15:44:28

Reykjavík, 16. febrúar 2023.

Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.

Afkoma ársins 2022

        Rekstrartekjur ársins 15.757 m.kr. en 13.023 m.kr. árið 2021
        549 m.kr. hagnaður á árinu á móti 234 m.kr. hagnaði árið áður
        EBITDA afkoma var 1.467 m.kr. en 1.026 m.kr. árið 2021
        Eigið fé 6.591 m.kr. og eiginfjárhlutfall 49%

Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2022 var 549 m.kr. Árið áður var 234 m.kr. hagnaður.   Betri markaðsaðstæður og aðgerðir sem gripið var til skýra bætta afkomu frá fyrra ári. Eigið fé er 6.591 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 49%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 15.757 m.kr. árið 2022, en 13.023 m.kr. árið áður og hækka því um 21%. Aðrar tekjur voru 88 m.kr. en 135 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 7.906 m.kr. en 6.316 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 3.984 m.kr. og hækkaði um tæp 11%, annar rekstrarkostnaður var 2.488 m.kr. og hækkaði um tæp 13%. Afskriftir hækkuðu um tæp 2%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 978 m.kr., en 545 m.kr. rekstrarhagnaður árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.467 m.kr. en var 1.026 m.kr. árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 321 m.kr., en voru 260 m.kr. árið áður. Gengistap var 16 m.kr. samanborið við 4 m.kr. gengistap árið áður.

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 19 m.kr.

Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 127 m.kr. en 59 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri ársins var 549 m.kr. en 234 m.kr. hagnaður árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.452 m.kr. árið 2022 samanborið við 956 m.kr. árið 2021. Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2022 voru 13.439 m.kr. og eiginfjárhlutfall 49%.   Veltufjárhlutfall var 2,0 árið 2022, en 2,4 árið áður.

Fjárfest var á árinu fyrir 671 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 362 m.kr. árið áður. Seldar voru eignir fyrir 26 m.kr. Á árinu var fjárfest í fasteignum fyrir 206 m.kr., vélum og tækjabúnaði fyrir 359 m.kr. og bifreiðum 106 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2022 var í aprílmánuði greiddur 14,84% arður af B-deild stofnsjóðs alls 27 m.kr. og reiknaðir 6% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 21 m.kr.

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.   Ársreikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu SS: www.ss.is

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX. Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2023 þann 24. ágúst 2023.

Aðalfundur
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 17. mars n.k. Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 19,34% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 9,34%, alls 34,8 m.kr. eða 0,1934 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 7,5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 27,5 m.kr.

Staða og horfur
Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 49% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,0. Langtímatímaskuldir í lok árs voru 2.678 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 95 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma. Lausafjárstaða félagsins er einnig góð en handbært fé var um áramót 1.256 m.kr. og góður aðgangur að skammtímafjármögnun sé þess þörf.

Rekstrartekjur samstæðunnar hækkuðu um 2.734 m.kr. eða um 21% vegna betri markaðsaðstæðna og aðgerða til að auka tekjur. Staðan á veitingamarkaði batnaði auk þess sem samstæðan styrkti stöðu sína á smásölumarkaði og sölu rekstrarvara til bænda. Afkoma Sláturfélagsins batnar milli ára um 316 m.kr.

Framleiðsla kjöts á landsvísu stóð í stað á árinu 2022 en sala jókst um 3,2%. Áhyggjuefni er áætlaður samdráttur í kindakjötsframleiðslu á komandi árum en afkoma bænda í greininni hefur verið slök og brýnt að hún verði bætt. Hækkanir á hrávörumarkaði hafa verið miklar einkum á áburði, kjarnfóðri og öðrum rekstrarvörum bænda. Mikilvægt er að stuðningur verði áfram við greinina til lengri tíma en annað getur haft mjög neikvæð áhrif á innlenda matvælaframleiðslu. Áfram er gert ráð fyrir neikvæðum áhrifum af innflutningi kjötvara á afkomu afurðahluta samstæðunnar.

Matvælaiðnaður félagsins stendur vel. Á árinu var fjárfest í nýjum vélbúnaði til að auka enn frekar hagkvæmni matvælaframleiðslunnar. Ímynd félagsins á markaði er góð og staða lykilvörumerkja sterk sem treystir grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði.

Sala á innflutningsvörum, matvælum og búrekstrarvörum jókst verulega milli ára. Góð tækifæri eru til frekari vaxtar en félagið er í samstarfi við leiðandi aðila á sínu sviði.

Fjárhagsdagatal
17. mars 2023                        Aðalfundur 2022
24. ágúst 2023                      Árshlutauppgjör jan-jún 2023
15. febrúar 2024                    Ársuppgjör 2023
15. mars 2024                        Aðalfundur vegna ársins 2023

Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is
Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is