Tisdag 13 Maj | 15:11:27 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2020-08-20 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-15 - X-dag ordinarie utdelning SFS B 0.13 ISK
2020-06-11 - Årsstämma
2019-08-22 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-03-25 - X-dag ordinarie utdelning SFS B 0.13 ISK
2019-03-20 - Årsstämma

Beskrivning

LandIsland
ListaFirst North Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDagligvaror
Sláturfélag Suðurlands driver egen köttproduktion. Idag består organisationen av ett flertal bönder och aktieägare som tillsammans driver verksamheten. Inom verksamheten återfinns egna slakterier och tillhörande bearbetningsanläggningar, där produkterna säljs både på den inhemska – och internationella marknaden. Utöver huvudverksamheten erbjuds bearbetade produkter för lammskinn som används inom modebranschen.
2025-02-18 15:54:15

Reykjavík, 18. febrúar 2025.

Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.

Afkoma ársins 2024

        Rekstrartekjur ársins 17.748 m.kr. en 17.143 m.kr. árið 2023
        872 m.kr. hagnaður á árinu á móti 792 m.kr. hagnaði árið áður
        EBITDA afkoma var 1.685 m.kr. en 1.787 m.kr. árið 2023
        Eigið fé 8.227 m.kr. og eiginfjárhlutfall 59%

Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2024 var 872 m.kr. Árið áður var 792 m.kr. hagnaður. Bætt staða á veitinga- og smásölumarkaði, lækkun fjármagnsgjalda og aukning fjármagnstekna skýra betri afkomu frá fyrra ári. Eigið fé er 8.227 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 59%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 17.748 m.kr. árið 2024, en 17.143 m.kr. árið áður og hækka því um 3,5%. Aðrar tekjur voru 113 m.kr. en 164 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 8.678 m.kr. en 8.484 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 4.601 m.kr. og hækkaði um 7,7%, annar rekstrarkostnaður var 2.898 m.kr. og hækkaði um 4,9%. Afskriftir fastafjármuna og nýtingarréttar lækkuðu um 4,1%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 1.135 m.kr., en 1.215 m.kr. rekstrarhagnaður árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.685 m.kr. en var 1.787 m.kr. árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 50 m.kr., en voru 233 m.kr. árið áður. Lækkun milli ára skýrist af góðri ávöxtun lausafjár og hagstæðri langtímafjármögnun.   Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 3,7 m.kr.   Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 217 m.kr. en 191 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri ársins var 872 m.kr. en 792 m.kr. hagnaður árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.684 m.kr. árið 2024 samanborið við 1.777 m.kr. árið 2023. Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2024 voru 13.870 m.kr. og eiginfjárhlutfall 59% en 53% árið áður.   Veltufjárhlutfall var 2,6 árið 2024, en 2,7 árið áður.

Fjárfest var á árinu fyrir 645 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 512 m.kr. árið áður. Á árinu var fjárfest í fasteignum fyrir 180 m.kr., og vélbúnaði og bifreiðum fyrir 465 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2024 var greiddur 18,01% arður af B-deild stofnsjóðs alls 36 m.kr. að frádregnum arði af eigin bréfum félagsins og reiknaðir 10% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 40 m.kr.

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.   Ársreikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu SS: www.ss.is

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX. Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2025 þann 21. ágúst 2025.

Aðalfundur
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 21. mars n.k. Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 14,77% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 4,77%, alls, 29,5 m.kr. eða 0,1477 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 14,77% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 64,1 m.kr.

Staða og horfur
Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 59% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,6. Langtímatímaskuldir í lok árs voru 1.973 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 50 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma. Lausafjárstaða félagsins er einnig góð en handbært fé var um áramót 1.446 m.kr. og góður aðgangur að skammtímafjármögnun sé þess þörf.

Rekstrartekjur samstæðunnar hækkuðu um 605 m.kr. eða um 3,5% vegna bættrar stöðu á veitinga- og smásölumarkaði. Útflutningur dróst hins vegar saman á lambakjöti og verð á áburði til bænda lækkaði umtalsvert sem dregur úr veltu á innflutningsvörum þrátt fyrir magnaukningu milli ára. Afkoma Sláturfélagsins batnar milli ára um 80 m.kr.

Framleiðsla kjöts á landsvísu jókst á árinu 2024 um 2,2% og sala um 2,5%. Áhyggjuefni er áætlaður samdráttur í kindakjötsframleiðslu á komandi árum en kindakjötsframleiðslan dróst saman um 5% á síðasta ári og sala um 3,5%. Jákvætt er að lækkanir á hrávörumarkaði eins og áburði héldu áfram á árinu 2024 eftir miklar verðhækkanir í kjölfar innrásar Rússa í Úkraníu. Mikilvægt er að stuðningur verði áfram við kindakjötsframleiðsluna til lengri tíma en annað getur haft mjög neikvæð áhrif á innlenda matvælaframleiðslu. Áfram er gert ráð fyrir neikvæðum áhrifum af innflutningi kjötvara á afkomu afurðahluta samstæðunnar.

Matvælaiðnaður félagsins stendur vel og styrkti stöðu sína á árinu 2024. Á árinu var fjárfest í nýjum vélbúnaði til að auka enn frekar hagkvæmni matvælaframleiðslunnar. Ímynd félagsins á markaði er góð og staða lykilvörumerkja sterk sem treystir grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði.

Sala á innflutningsvörum, matvælum og búrekstrarvörum jókst talsvert milli ára. Góð tækifæri eru til frekari vaxtar en félagið er í samstarfi við leiðandi framleiðendur á sínu sviði.

Fjárhagsdagatal
21. mars 2025                       Aðalfundur vegna ársins 2024
21. ágúst 2025                      Árshlutauppgjör jan-jún 2025
19. febrúar 2026                    Ársuppgjör 2025
20. mars 2026                       Aðalfundur vegna ársins 2025

Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is
Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is