Fredag 22 Maj | 11:14:05 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2023-05-10 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 - Årsstämma
2023-02-15 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-02 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-30 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-11 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 - Årsstämma
2022-02-16 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-03 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-09-01 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-12 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-02-24 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-04 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-26 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-13 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-20 - Årsstämma
2020-02-26 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-21 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-09 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-25 - X-dag ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2019-03-22 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Sýn är ett telekombolag. Idag erbjuder bolaget ett brett utbud av mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, övriga IP-lösningar, samt tillhörande support och tjänster. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden. Bolaget kom till vid en sammanslagning av Vodafone Island och bolagen som gick under 365 koncernen.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-05-07 18:11:30

Kjarnastarfsemi vex á traustari grunni

Sýn hf. birtir helstu rekstrarniðurstöður fyrsta ársfjórðungs 2026. Afkoma fjórðungsins er umfram áætlanir og endurspeglar áframhaldandi viðsnúning í rekstri félagsins. Heildartekjur námu 5.461 m.kr. og jukust um 3,6% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu var vöxturinn 6,5% og er borinn uppi af kjarnastarfsemi félagsins; interneti, farsíma, fjölmiðlun og auglýsingasölu, þar sem tekjur jukust um 11,7% milli ára.


Samhliða vexti kjarnatekna skilaði markvisst kostnaðaraðhald sér í verulega bættri afkomu. EBITDAaL nam 842 m.kr. á fjórðungnum og hækkaði um 44,9% milli ára. Rekstrartap (EBIT) dróst saman um 63 m.kr., úr 141 m.kr. tapi í 79 m.kr. tap. Fjárfestingar jukust um 358 m.kr. milli ára og námu 837 m.kr., einkum vegna fjárfestingar í sýningarrétti á Enska boltanum en einnig voru fjárfestingar á samanburðartímabilinu óvenjulega lágar. Þá var EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum jákvætt um 5 m.kr. á fjórðungnum.

Handbært fé frá rekstri nam 1.056 m.kr. og jókst um 206 m.kr. milli ára. Auk þess hafa hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga lækkað um rúman milljarð á fjórðungnum.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri:

„Fyrsti ársfjórðungur 2026 staðfestir að aðgerðir og umbreyting síðasta árs eru að skila árangri. Tekjur halda áfram að vaxa, EBITDAaL hækkar um nær helming á milli ára og handbært fé frá rekstri eykst.

Sameining vörumerkja undir merkjum Sýnar, einfaldara vöruframboð og samruni dótturfélaganna inn í móðurfélagið hafa skilað sér í lægri rekstrarkostnaði og bættri framlegð. Launakostnaður lækkar um 6,1% milli ára og endurspeglar bæði fækkun stöðugilda og þá hagræðingu sem náðst hefur með einföldun skipulags. Stöðugildi voru 375 á tímabilinu samanborið við 410 á fyrsta fjórðungi 2025.

Sala farnetsdreifikerfa til Sendafélagsins, sem lokið var á síðasta ári, hefur jákvæð áhrif á efnahag félagsins á fjórðungnum. Endurgreiðsla á seljandaláni frá Sendafélaginu að fjárhæð 938 m.kr. styrkti lausafjárstöðu og gerði félaginu kleift að lækka rekstrarlán um 908 m.kr. á fjórðungnum. Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa þannig lækkað um rúman milljarð frá áramótum.

Eins og kunnugt er tók félagið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. um sölu á vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Gangi salan eftir mun hún styrkja efnahagsreikning félagsins sem skapar aukið svigrúm til að efla kjarnarekstur til framtíðar.

Við fórum inn í árið með traustari grunn, einfaldari rekstur og skýra forgangsröðun um að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu. Samhliða því verður áfram lögð áhersla á að bæta arðsemi í fjarskiptum og fjölmiðlum og að nýta þau tækifæri sem skapast með einfaldara skipulagi.“

Frekari upplýsingar 

Í samræmi við heimild í ákvæðum laga og í takti við stefnu félagsins um einföldun og skilvirkni verður árshlutareikningur ekki birtur fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung.

Ekki verður haldinn sérstakur fjárfestafundur til að kynna uppgjör 1. ársfjórðungs. Næsti fjárfestafundur verður 28. ágúst 2026 í kjölfar birtingar á afkomu 2F 2026. Fjárfestar geta sent fyrirspurnir á fjarfestatengsl@syn.is eða óskað eftir fundi.

Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.