Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Telekom & Media |
Industri | Telekommunikation och -tjänster |
Í viku 48 keypti Sýn 195.000 eigin hluti að kaupverði 8.300.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
48 | 27.nóv | 14:35:38 | 65.000 | 42,6 |
48 | 29.nóv | 12:31:20 | 65.000 | 42,6 |
48 | 1.des | 10:43:11 | 65.000 | 42,5 |
Samtals | 195.000 | 8.300.500 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. nóvember 2023.
Sýn átti 780.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 975.000 eigin hluti eða sem nemur 0,39% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sýn hefur keypt samtals 975.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,39% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 41.665.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,19% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 300.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 16. febrúar 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is