Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Telekom & Media |
Industri | Telekommunikation och -tjänster |
Í viku 9 keypti Sýn 876.224 eigin hluti að kaupverði 53.394.900 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
28.2.2022 | 13:10:22 | 219.056 | 61,50 | 13.471.944 |
1.3.2022 | 09:38:06 | 219.056 | 61,50 | 13.471.944 |
2.3.2022 | 09:38:22 | 219.056 | 60,50 | 13.252.888 |
3.3.2022 | 09:36:15 | 219.056 | 60,25 | 13.198.124 |
Samtals | 876.224 | 53.394.900 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 12. janúar 2022.
Sýn átti 27.188.288 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 28.064.512 eigin hluti eða sem nemur 9,47% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Sýn hefur keypt samtals 7.314.512 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,47% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 469.609.624 kr. Sýn á samtals 9,47% af heildarhlutafé félagsins sem er 296.441.474. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 8.500.000 hlutum eða sem nemur 9,9% af útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 600.000.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veita:
fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is