Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Telekom & Media |
Industri | Telekommunikation och -tjänster |
Vísað er til fyrri tilkynninga vegna aðalfundar Sýnar hf., sem fram fer á morgun, fimmtudaginn 11. apríl kl. 15:00.
Meðfylgjandi er uppfært fundarboð og starfskjarastefna, ásamt breyttri tillögu stjórnar undir dagskrárlið 7, sem lýtur að kaupréttaráætlun fyrir lykilstjórnendur. Breytingar frá fyrri tillögu stjórnar eru auðkenndar í skjölunum.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða fylgjast með fundinum í vefstreymi, er vinsamlega bent á að skrá sig tímanlega á vefsvæðinu: www.lumiconnect.com/meeting/syn2024
Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn, þ.m.t. uppfærð kaupréttaráætlun til samræmis við breyttar tillögur stjórnar, auk annarra fundargagna er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins: https://syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur