Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Telekom & Media |
Industri | Telekommunikation och -tjänster |
Á aðalfundi Sýnar hf. þann 11. apríl 2024 var stjórn veitt heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og gera kaupréttarsamninga við allt fastráðið starfsfólk samstæðunnar um kaup á hlutum í félaginu. Nú hefur verið gengið frá kaupréttarsamningum við starfsfólk í samræmi við samþykkta kaupréttaáætlun. Kaupréttur samkvæmt áætluninni nær til allra fastráðinna starfsmanna Sýnar og félaga í sömu samstæðu og er markmið áætlunarinnar að tengja hagsmuni starfsfólks við afkomu og langtímamarkmið félagsins og hluthafa þess.
Kaupréttur hvers kaupréttarhafa ávinnst í tveimur áföngum á tveimur árum frá gerð kaupréttarsamnings.
Kaupverð hluta er vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins síðustu tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem er 22. nóvember 2024, eða kr. 30.62 hver hlutur.
Alls tóku 325 starfsmenn samstæðunnar þátt sem samsvarar allt að 5.306.989 hlutum á ári, eða 10.613.978 hlutum fyrir bæði árin, miðað við 100% nýtingu kauprétta.
Áætlaður heildarkostnaður (gjaldfærsla) vegna þessara kaupréttarsamninga er að fjárhæð 61.1 m.kr
Kaupréttaráætlun þessi var staðfest af ríkisskattstjóra þann 10. júlí 2024 og er í samræmi við 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.
Kaupréttaráætlunin er meðfylgjandi.