15:50:43 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2024-02-15 Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 Årsstämma 2023
2023-02-15 Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 Årsstämma 2021
2021-02-17 Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 Ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.
2024-02-26 16:13:10

Halldór Þór Snæland hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) og tekur sæti í framkvæmdastjórn bankans. Viðskiptabankasviðið þjónustar viðskiptavini með almennri bankaþjónustu, fjölbreyttum fjártæknilausnum og í gegnum sérhæfð vörumerki og dótturfélög. Á meðal vörumerkja sem heyra undir viðskiptabankasviðið eru Auður, Aur, Lykill, Netgíró og Straumur.

Halldór býr yfir tveggja áratuga reynslu af störfum á fjármálamarkaði og hefur starfað hjá Kviku frá árinu 2015. Hann hefur síðustu fjögur ár verið forstöðumaður rekstrardeildar og var áður sérfræðingur í fjárstýringu Kviku. Á árunum 2014 til 2015 var Halldór fjármála- og rekstrarstjóri hjá nýsköpunarfyrirtækinu Sidekick Health. Hann var forstöðumaður fjárstýringar MP banka um sjö ára skeið á árunum 2006 til 2012 og starfaði þar áður sem sérfræðingur í áhættustýringu hjá Kaupþingi og Búnaðarbanka Íslands.

Halldór lauk M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá KTH Royal Institute of Technology í Stokkhólmi árið 2014 og útskrifaðist frá Háskóla Íslands með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði árið 2003 ásamt því að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Frekari upplýsingar veitir: 
Magnús Þór Gylfason, forstöðumaður samskipta og hagaðilatengsla, magnus.gylfason@kvika.is