Kvika banki hf.: Jón Birgir Jónsson ráðinn forstjóri Kviku banka
Stjórn Kviku banka hefur ráðið Jón Birgi Jónsson sem forstjóra Kviku banka hf. Jón Birgir mun hefja störf þann 1. desember næstkomandi og tekur þá við af Ármanni Þorvaldssyni, sem tilkynnti fyrr á árinu að hann hygðist láta af störfum sem forstjóri bankans.
Jón Birgir býr yfir yfirgripsmikilli reynslu af alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hefur starfað stærstan hluta starfsferils síns erlendis, í London og New York, hjá tveimur af stærstu eignastýringarfyrirtækjum heims.
Á árunum 2013 til 2025 starfaði Jón Birgir hjá Neuberger Berman í London, þar sem hann var einn af eigendum félagsins og gegndi stjórnendastöðu. Hann kom til félagsins til að styrkja starfsemi þess á sviði alþjóðlegra skuldabréfafjárfestinga og sinnti síðar í auknum mæli samskiptum við fag- og stofnanafjárfesta. Þar áður starfaði hann frá árinu 1998 hjá J.P. Morgan Asset Management, bæði í New York og London, sem sjóðstjóri með áherslu á skuldabréf og alþjóðlega vaxtamarkaði.
Jón Birgir lauk grunnnámi í stærðfræði við Háskóla Íslands og framhaldsnámi í fjármálaverkfræði við New York University. Þrátt fyrir langan starfsferil erlendis hefur hann haldið sterkum tengslum við íslenskt atvinnulíf, meðal annars sem stjórnarmaður í Bresk-íslenska viðskiptaráðinu.