Fredag 25 April | 23:59:38 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-02-15 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 - Årsstämma
2023-02-15 - Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 - Årsstämma
2021-02-17 - Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.
2025-02-21 17:00:00

Samkeppniseftirlitið hefur nú kunngert að gerð hafi verið sátt við Landsbankann vegna kaupa á 100% hlutafjár TM trygginga hf. af Kviku banka. Þar með hefur fyrirvörum í kaupsamningi sem lúta að samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og Samkeppniseftirlitsins verið aflétt. Afhending á tryggingafélaginu til Landsbankans er áætluð þann 28. febrúar næstkomandi og mun Landsbankinn greiða Kviku banka umsamið kaupverð við afhendingu.  

Eins og kom fram í tilkynningu Kviku banka um kaupin þann 30. maí 2024 er umsamið kaupverð 28,6 ma.kr. og miðast það við efnahagsreikning TM í upphafi árs 2024. Endanlegt kaupverð verður aðlagað miðað við breytingar á efnislegu eigin fé TM frá upphafi árs 2024 til afhendingardags.

Í kjölfar viðtöku á kaupverði hyggst stjórn Kviku banka leggja til á aðalfundi bankans þann 26. mars næstkomandi sérstaka arðgreiðslu til hluthafa bankans og verður sú tillaga birt samhliða öðrum tillögum stjórnar til aðalfundar eigi síðar en þann 5. mars næstkomandi. 

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.