Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Kvika gaf í dag út almenn skuldabréf (e. senior preferred) að fjárhæð 150 milljónir evra til 4 ára.
Skuldabréfin eru gefin út undir Euro Medium Term Note (EMTN) útgáfuramma bankans og voru seld á ávöxtunarkröfu sem samsvarar álagi upp á 165 punkta yfir millibankavöxtum í evrum. Skuldabréfin bera 4,375% fasta árlega vexti og eru á gjalddaga 10 júní 2030.
Skuldabréfin verða skráð í kauphöll Euronext Dublin og er áætlað að þau fái einkunnina Baa2 frá lánshæfismatsfyrirtækinu Moody’s Investors Service.
Umsjónaraðilar (e. joint lead managers ) útgáfunnar voru Barclays, J.P. Morgan SE og Morgan Stanley.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is eða í síma 540 3200.