Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
2025-06-20 18:01:10
Kvika banki hefur unnið að greiningu á mögulegum áhrifum vegna frumvarps um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 sem kveða m.a. á um innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2024/1623 (CRR III).
Kvika banki væntir þess, miðað við þær forsendur sem nú liggja fyrir, að möguleg áhrif frumvarpsins á áhættugrunn bankans kunni að leiða til um 14% lækkunar á áhættugrunni bankans m.v. gögn frá 31. maí 2025.
Lækkunin er að mestu tilkomin vegna breytinga á áhættuvogum fasteignatryggðra lána og útreikningum tengdum eiginfjárbindingu vegna rekstraráhættu.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is eða í síma 540 3200.