Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Moody's Investors Service („Moody‘s“) tilkynnti í dag staðfestingu á Baa1/P-2 skammtíma lánshæfismat Kviku banka hf. („Kvika“) á innlánum, Baa2 langtíma lánshæfismat Kviku sem útgefanda óveðtryggðra skuldabréfa og grunnlánshæfismat og aðlagað grunnlánshæfismat (BCA) sem ba1.
Moody‘s staðfestir einnig (P)Baa2 lánshæfismat EMTN útgáfuramma vegna óveðtryggðra skuldabréfa og (P)Ba1 vegna undirskipaðra óveðtryggðra skuldabréfa (e. junior senior unsecured). Að lokum var lánshæfismat víkjandi skuldabréfa hækkað í (P)Ba1 úr (P)Ba2.
Horfur lánshæfismatsins eru stöðugar en áður höfðu einkunnirnar verið til endurskoðunar í kjölfar þess að hafnar voru samrunaviðræður við Arion banka hf.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is eða í síma 540-3200.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 7. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.