Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
2025-06-10 17:39:17
Moody's Ratings („Moody‘s“) tilkynnti í dag að formlega hefði verið tekið til skoðunar að hækka lánshæfismat Kviku banka hf. („Kvika“). Tilkynning Moody's kemur í kjölfar þess að Íslandsbanki hf. annars vegar og Arion banki hf. hins vegar hafa óskað eftir að hefja viðræður við stjórn Kviku um samruna. Ekki liggur fyrir nein ákvörðun af hálfu stjórnar Kviku um framvindu.
Tilkynningu Moody's má finna í viðhengi.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 7. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.