Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Bank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Í viku 6 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 12.400.000 eigin hluti að kaupverði 233.175.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
| 2.2.2026 | 11:14:29 | 1.000.000 | 18,575 | 18.575.000 |
| 2.2.2026 | 14:36:32 | 1.000.000 | 18,60 | 18.600.000 |
| 3.2.2026 | 10:29:02 | 1.000.000 | 18,80 | 18.800.000 |
| 3.2.2026 | 14:13:16 | 1.000.000 | 18,75 | 18.750.000 |
| 3.2.2026 | 14:51:07 | 600.000 | 18,75 | 11.250.000 |
| 4.2.2026 | 10:05:15 | 1.000.000 | 18,75 | 18.750.000 |
| 4.2.2026 | 14:22:16 | 1.000.000 | 19,00 | 19.000.000 |
| 4.2.2026 | 14:53:39 | 600.000 | 19,00 | 11.400.000 |
| 5.2.2026 | 10:11:08 | 1.000.000 | 18,85 | 18.850.000 |
| 5.2.2026 | 13:51:43 | 1.000.000 | 18,85 | 18.850.000 |
| 5.2.2026 | 14:48:54 | 600.000 | 18,85 | 11.310.000 |
| 6.2.2026 | 13:05:26 | 1.000.000 | 18,80 | 18.800.000 |
| 6.2.2026 | 15:13:35 | 1.600.000 | 18,90 | 30.240.000 |
| Samtals | 12.400.000 | 233.175.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 22. maí 2025 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024 og endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26. mars 2025. Gert var hlé á endurkaupaáætlun sbr. tilkynningu þann 07.07.2025 og hún endurvakin sbr. tilkynningu þann 15.01.2026.
Kvika hefur nú keypt samtals 120.800.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,609% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.147.293.750 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 255.210.410 hlutir eða sem nemur 5,511% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 236.409.591.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 22. maí 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is