Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Í viku 16 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 12.000.000 eigin hluti að kaupverði 162.500.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
14.4.2025 | 10:51:05 | 2.000.000 | 13,58 | 27.150.000 |
14.4.2025 | 12:44:34 | 2.000.000 | 13,58 | 27.150.000 |
15.4.2025 | 09:52:26 | 2.000.000 | 13,53 | 27.050.000 |
15.4.2025 | 14:33:57 | 1.000.000 | 13,55 | 13.550.000 |
15.4.2025 | 14:42:32 | 3.000.000 | 13,50 | 40.500.000 |
16.4.2025 | 09.47:29 | 2.000.000 | 13,55 | 27.100.000 |
Samtals | 12.000.000 | 162.500.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. febrúar sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.
Kvika hefur nú keypt samtals 112.887.962 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,438% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.809.781.231 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 83.707.963 hlutir eða sem nemur 1,808% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 27. febrúar 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is