Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Á aðalfundi Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) þann 21. mars 2024 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa allt að 10% af útgefnum hlutum í félaginu, m.a. í þeim tilgangi að stjórn gæti komið á formlegri endurkaupaáætlun.
Á grundvelli þeirrar samþykktar ákvað stjórn Kviku þann 27. febrúar 2025 að nýta hluta framangreindrar heimildar og koma á endurkaupaáætlun um framkvæmd kaupa á hlutum fyrir allt að 5.000.000.000 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 400.000.000, í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans. Í dag á Kvika 61.893.341 eigin hluti.
Íslandsbanki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd fyrsta hluta endurkaupaáætlunarinnar fyrir fjárhæð allt að kr 2.500.000.000 og taka allar ákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð Kviku. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021. Þegar ákvarðanir eru teknar, og í framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar, skal fara eftir framangreindum ákvæðum, eins og við á, og gagnsæi tryggt í viðskiptum með eigin bréf tryggt við framkvæmd áætlunarinnar.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er þannig að kaup að nafnvirði hvers dags verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf Kviku á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup eru framkvæmd og skal hámarksverð í kaupum vera verð síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í Kauphöll Nasdaq Iceland. Íslandsbanki hefur samkvæmt samningi aðila heimild til að hefja endurkaup þann 3 mars nk. og endurkaupaáætlunin er í gildi til aðalfundar Kviku á árinu 2026 eða þar til endurkaupum að kaupvirði 2.500.000.000 kr. er lokið, hvort sem gerist fyrr.
Viðskipti bankans með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglur.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is