10:53:16 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2024-02-15 Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 Årsstämma 2023
2023-02-15 Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 Årsstämma 2021
2021-02-17 Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 Ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.
2022-08-17 19:59:10

Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir tíu tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 22.767.001 kr., um nýtingu réttindanna.

Ein tilkynning var um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II, þ.e. að 4.000.000 nýjum hlutun, og níu tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2017 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV, þ.e. að 18.767.001 nýjum hlutum í félaginu.

Framangreint felur í sér nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 22.767.001 nýjum hlutum. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 204.022.235 og því er reiknað meðalgengi 8,9613140.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæða II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 22.767.001 og mun eftir hækkun standa í kr. 4.854.722.308 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II mun í kjölfarið vera samtals kr. 10.175.000 að nafnvirði og á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV kr. 64.566.342 að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.